GOLFKLÚBBUR
KIÐJABERGS
Rástímar:
Hópar og tilboð :
Veitingasala :
Copyright © 2021
Pilsaþytur 2024 var haldinn á Kiðjabergsvelli 2. ágúst og var ræst út klukkan 18:00. 72 flottar konur voru skráðar til leiks að þessu sinni. Leikið var í alskonar veðri og réð hressleikinn og gleðin ríkjum.
Mótið var 9 holu Texas Scramble þar sem tvær konur mynduðu hvert liði, vön og óvön. Vegleg verðlaun voru afhent fyrir 1-3 sætið ásamt útdráttarvinningum meðan keppendur gæddu sér á dásamlegri kjúklingasúpu hjá Rakel í golfskálanum.
BYGG, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars var styrktaraðili mótsins eins og síðustu ár og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir.
Allar konurnar fengu glæsilegar teiggjafir frá BYGG, freyðivín og súkkulaði og frá Avita/Númer Eitt heildsölunni, Trace Minerals i vatnið sem er frábært að taka með útá völl í vatnsbrúsann til að halda vökvajafnvægi í likamanum , dásamlega góðar og sykurlausar mintur og besta Númer Eitt sótthreinsisptittið. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn!
ÚRSLIT
Í fyrsta sæti var liðið EC, í öðru sæti voru Mæðgurnar og í því þriðja Magnúsdóttir/Jónatansdóttir. Vinningarnir voru gjafakort frá Golf Company. Að auki voru dregnir út 12 úrdráttarviningar þar sem var dregið úr skorkortum.
Takk fyrir frábært kvöld!
'
Myndir frá deginum (smelltu á myndirnar til að stækka þær):
Veitingasala:
rakelmatt@gkb.is