Staðarreglur á Kiðjabergsvelli

1.  Vallarmörk, hælar og litaðar línur

 Hvítt: ''Út af'' (vallarmarkalína, "Out of Bounds").

 1-2- 7- 8 og 18 braut. Hvítir hælar á 10-13 braut merkja að bolti sem fer upp á eða yfir veg hægra megin er út af.


2.  Svæði merkt með bláum og hvítum hælum er friðlýst svæði (bannsvæði í grund í aðgerð)

Svæðið sem skilgreint er með bláum stikum með hvítum topp er bannreitur og á að meðhöndlast sem óeðlilegar vallaraðstæður, á 5. braut hægramegin, hóll fyrir framan 5. flöt, á 6. hóll hægramegin við flöt og hóll fyrir framan 14. braut. Taka verður vítalausa lausn frá truflun vegna bannreitsins samkvæmt reglu 16.1f, eða með því að láta bolta falla á fallreiti svæðanna. Ef bolti er tíndur í svæðinu má setja nýan bolta í leik.


3.  Óhreyfanlegar hindranir 

 Fjarlægðarstikur 100 m 150 m og 200 m
 Malar- og kurlbornir stígar
 Aðrar óhreyfanlegar hindranir - sjá skilgreiningu í golfreglunum

Fjarlægðar stikur (100, 150 og 200m), malar og kurlbornir stígar á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir sem lausn er veitt frá samkvæmt reglu 16.1. Engin lausn fæst samkvæmt reglu 15.2. 

Á 12. braut er fallreitur fyrir þá sem lenda innan blámerkts svæðis á plani fyrri kerrur og golfbíla .


5. Færslur á braut

Þegar bolti leikmanns liggur innan almenna svæðisins og þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar, má leikmaðurinn taka vítalausa lausn einu sinni áður en högg er slegið, með því að leggja upphaflega boltann eða annan bolta innan þessa lausnarsvæðis og leika honum þaðan: 

  Viðmiðunarstaður: Staðurinn þar sem boltinn liggur (sjá reglu 14.1).

  Stærð lausnarsvæðis, mæld frá viðmiðunarstað: Ein kylfulengd frá viðmiðunarstað, en með eftirfarandi takmörkunum:

  Takmörk á staðsetningu lausnarsvæðis:

 

  • Það má ekki vera nær holunni en viðmiðunarstaðurinn, og
  • Það verður að vera á almenna svæðinu.

 

Þegar farið er eftir þessari staðarreglu verður leikmaðurinn að velja stað til að leggja boltann og fara eftir aðferðum við að leggja bolta aftur samkvæmt reglu 14.2b(2) og 14.2e. 


Að öðru leiti skal leika samkvæmt golfreglum The Royal and Ancient of St. Andrews.

Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í höggleik/punktakeppni tvö högg.

Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í holukeppni holutap.


 

Dómari:  Börkur Arnviðarson s: 863 9039



--- 000 ---


Viðbótarstaðarreglur sem gilda þegar reglur vegna Covid eru í gildi við golfspil.


6. Flaggstöng (Covid-19 frávik)
Óheimilt er að snerta flaggstöngina eða fjarlægja hana úr holunni. Ef flaggstöngin er snert fyrir slysni er það vítalaust.


7. Bolti í holu (Covid-19 frávik)
Við þær aðstæður þar sem holan er fóðruð að innan, t.d. með svamphólk, og boltinn er í holunni, en ekki allur undir yfirborði flatarinnar þá er hann ​í holu. ​Meiri líkur en minni eru að hann hvíli upp við flaggstöngina og þá gildir regla 13.2c.


8. Bætt lega í glompu, færa um lengd kylfugrips (Covid-19 frávik)
Þar sem hrífur hafa verið fjarlægðar úr glompu og ástand hennar er mjög ójafnt þá má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en höggið er slegið, með því að leggja upphaflega boltann innan lausnarsvæðis og leika honum þaðan.

  • Viðmiðunarstaður: Staðurinn þar sem boltinn liggur (sjá reglu 14.1)

 

  • Stærð lausnarsvæðis, mæld frá viðmiðunarstað: lengd kylfugrips (ekki pútter) frá viðmiðunarstað, en með eftirfarandi takmörkunum:
  • Takmörk á staðsetningu lausnarsvæðis
    Það má ekki vera nær holunni en viðmiðunarstaðurinn, og
  • Það verður að vera í glompunni.

 

Þegar farið er eftir þessari staðarreglu verður leikmaðurinn að velja stað til að leggja boltann og fara eftir aðferðum við að leggja bolta aftur samkvæmt reglu 14.2b(2) og 14.2e.
Víti fyrir að leika bolta á röngum stað í bága við staðarregluna : Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.


Share by: